Meta heildstætt gróðurauðlindir Íslands

Oddný Steina Valsdóttir, varaformaður Landssamtaka sauðfjárbænda, Árni Bragason landgræðslustjóri, Þorgerður …
Oddný Steina Valsdóttir, varaformaður Landssamtaka sauðfjárbænda, Árni Bragason landgræðslustjóri, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. Mynd/Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Bændasamtök Íslands, Landgræðsla ríkisins og Landssamtök sauðfjárbænda hafa gert með sér samkomulag til 10 ára um mat á gróðurauðlindum. Markmið verkefnisins er tvíþætt. Annars vegar að skila með reglubundnum hætti heildarmati á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda landsins og gera grein fyrir breytingum þar á. Hins vegar að þróa sjálfbærnivísa fyrir nýtingu gróður- og jarðvegsauðlinda landsins.  

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að núverandi búvörusamningar geri ráð fyrir að ráðist sé í verkefni sem felur í sér símat á ástandi gróðurauðlindarinnar. Til að tryggja sjálfbæra nýtingu hennar sé nauðsynlegt að koma á heildstæðu ferli um vöktun gróðurs og jarðvegs á Íslands, áþekkt því sem verið hefur með sjávarauðlindir.

Landgræðslunni er falin umsjón verkefnisins, en samkvæmt lögum um stofnunina ber henni að „hafa gát á meðferð á gróðri landsins og vinna gegn því, að hann eyðist fyrir ofnotkun eða aðra óskynsamlega meðferð.“. Landgræðsla ríkisins hefur nú þegar nauðsynlega innviði til þess að hafa umsjón með slíkri vöktun. Stofnunin rekur héraðssetur í öllum landshlutum, hefur hæft starfsfólk sem sinnir eftirliti með ástandi gróðurs og jarðvegs og rekur vöktunarkerfi þar sem fylgst er með kolefnisbúskap og gróðurauðlindum á landgræðslusvæðum.

Landgræðslan mun ráða verkefnisstjóra sem mun vinna í nánu samstarfi við sérfræðinga stofnunarinnar og faghóp verkefnisins.

Formaður faghópsins er Oddný Steina Valsdóttir, varaformaður Landssamtaka sauðfjárbænda. Aðrir í hópnum eru: Borgar Páll Bragason, fagstjóri í nytjaplöntum RML, Jóhannes Sveinbjörnsson, dósent LbhÍ, Ingibjörg Svala Jónsdóttir, prófessor HÍ, og Borgþór Magnússon, plöntuvistfræðingur, Náttúrufræðistofnun Íslands.

Alls verður varið 35,5 milljónum króna til verksins á yfirstandandi ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert