Kæra frávísun lögreglunnar

Um 100 tilkynningar um regnbogasilung í íslenskum ám bárust í …
Um 100 tilkynningar um regnbogasilung í íslenskum ám bárust í fyrra. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson

Landssamband veiðifélaga (LV) hefur kært frávísun Lögreglunnar á Vestfjörðum á kæru félagsins vegna sleppingar regnbogasilungs á Vestfjörðum til Ríkissaksóknara. Kæran laut að sleppingu á regnbogasilungi sem fundist hefur víða í ám um norðan- og vestanvert landið undanfarið ár.

Í tilkynningu frá landssambandinu segir að það telji  að Matvælastofnun hafi ekki sérstakar valdheimildir til að rannsaka málið sem opinbert mál. Þá teljist það ekki skilyrði fyrir opinberri rannsókn að kæra hafi komið frá Matvælastofnun. Er ákvörðun Lögreglunnar á Vestfjörðum frá 15. febrúar um frávísun málsins kærð.

Þá er athygli Ríkissaksóknara vakin á því að starfsemi Matvælastofnunar sætir nú úttekt í kjölfar harðrar gagnrýni á stofnunina um að sinna ekki ábyrgðarhlutverki sínu eins og upplýst var í fjölmiðlum. Telur landssambandið að mál þetta til marks um að stofnunin hafi ekki uppfyllt lögbundið eftirlitshlutverk sitt og því nauðsynlegt að opinber rannsókn fari fram á á öllum þáttum þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert