Hæstiréttur braut gegn tjáningarfrelsi Steingríms

Hæstiréttur braut á tjáningarfrelsi Steingríms Sævars Ólafssonar með dómi sínum.
Hæstiréttur braut á tjáningarfrelsi Steingríms Sævars Ólafssonar með dómi sínum.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur úrskurðað að Hæstiréttur Íslands hafi brotið gegn tjáningarfrelsi Steingríms Sævars Ólafssonar, fyrrverandi ritstjóra Pressunnar. Hæstiréttur úrskurðaði árið 2013 að Steingrímur skyldi greiða manni sem bauð sig fram til stjórn­lagaráðs 200 þúsund krón­ur í miska­bæt­ur og 800 þúsund krón­ur í máls­kostnað vegna ærumeiðandi um­mæla sem birt­ust í miðlin­um. Um­mæli voru jafn­framt ómerkt.

Dóminn telur Mannréttindadómstóllinn brjóta gegn 10. grein mannréttindasáttmálans.

Ægir Geir­dal Gísla­son höfðaði mál gegn Steingrími árið 2011 og krafðist þess að sex til­greind um­mæli um meint kyn­ferðis­brot hans gegn tveimur systr­um yrðu dæmd dauð og ómerk.

Í dómi sínum féllst Hæstirétt­ur á að þeir sem gæfu kost á sér til trúnaðarstarfa í þágu al­menn­ings yrðu að þola um­fjöll­un á op­in­ber­um vett­vangi sem snerti hæfni þeirra og eig­in­leika og hvort þeir væru trausts­ins verðir. Það rétt­lætti hins vegar ekki að Ægi væri bor­in á brýn sú refsi­verða hátt­semi sem fram hefði komið hjá net­miðlin­um. Hefði Ægir hvorki verið fund­inn sek­ur um þá hátt­semi sem hann var sakaður um né sætt rann­sókn lög­reglu af slíku til­efni.

Um­mæl­in „Syst­ur: Sitj­um ekki þegj­andi und­ir því að barn­aníðing­ur bjóði sig fram til stjórn­lagaþings“ og „Við gát­um ekki setið þegj­andi und­ir því að barn­aníðing­ur byði sig fram til stjórn­lagaþings“ og „Maður­inn er stór­hættu­leg­ur og hann geng­ur laus“ sem birt­ust 7. nóv­em­ber 2010 í vef­miðlin­um Press­an.is og um­mæl­in „Syst­ur láta ekki dótt­ur Ægis Geir­dals sussa á sig – Barn­aníð ekki einka­mál fjöl­skyldu hans“ sem birt­ust 23. fe­brú­ar 2011 í sama miðli voru dæmd ómerkt.

Mannréttindadómstóllinn telur rök íslensku dómstólanna vissulega gild, en segir þau þó ekki réttlæta afskiptin af málinu. Hæstiréttur hafi ekki gætt meðalhófs eða tekið nægt tillit til þeirrar meginreglu og skilyrða sem málsóknin byggist á og jafnvægisins sem verði að vera milli réttarins til einkalífs og tjáningarfrelsis.

Segir enn fremur í dóminum að Steingrímur hafi ekki farið fram á miskabætur vegna dóms Hæstaréttar og því verði engar slíkar veittar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert