United Silicon fær ekki sex mánaða frest

United Silicon í Helguvík.
United Silicon í Helguvík. Ljósmynd/United Silicon

Boðaðar aðgerðir Umhverfisstofnunar, um óháða verkfræðilega úttekt og  takmörkun á starfsemi verksmiðjunnar að óbreyttu, eru í svarbréfi United Silicon taldar óþarflega íþyngjandi fyrir fyrirtækið. Á það fellst Umhverfisstofnun ekki, eins og kemur fram í tilkynningu stofnunarinnar. „Vill stofnunin [Umhverfisstofnun] benda á að fram hefur komið að vegna umfangsmikilla og endurtekinna rekstrarvandamála sé umfang eftirlits með verksmiðjunni fordæmalaust. Þá hefur rekstur verksmiðjunnar sérstöðu hvað varðar eðli, umfang framleiðslu og nálægð við íbúabyggð,“ segir í bréfi Umhverfisstofnunar til fyrirtækisins.

Segir í tilkynningunni að Umhverfisstofnun telji jákvætt að rekstraraðilinn vinni að því að greina vandamál í rekstri verksmiðjunnar og setji fram úrbótatillögur og óskar hún eftir að fá allar upplýsingar er út úr þeirri greiningarvinnu munu koma um leið og þær liggja fyrir og geta þær upplýsingar haft áhrif á umfang þeirrar verkfræðilegu úttektar sem stofnunin hefur boðað.

Umhverfisstofnun telur þó ekki nægilegar upplýsingar fram komnar til að falla frá þeim áformum sem tilgreind voru í bréfi til fyrirtækisins 21. febrúar um að fara þurfi fram verkfræðileg úttekt á hönnun og rekstri verksmiðjunnar. Stofnunin mun því á næstu vikum leita eftir tilboðum í slíka úttekt. Rekstraraðili verður upplýstur um umfang úttektarinnar og úttektaraðila áður en af henni verður. Tekið er fram að kostnaður við úttektina verði innheimtur hjá rekstaraðila. Ekki er því fallist á umbeðinn sex mánaða úrbótafrest.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert