Lögreglumaður ákærður fyrir ofbeldi

Lögreglustöðin við Hverfisgötu.
Lögreglustöðin við Hverfisgötu. mbl.is/Golli

Lögreglumaður í rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur verið ákærður af héraðssaksóknara vegna gruns um að hafa beitt mann, sem var í haldi lögreglu, ofbeldi.

Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari, í samtali við mbl.is.

Í frétt Vísis eru sagðar til myndbandsupptökur af atvikinu. Lögreglumanninum hafi þá ekki verið vikið frá störfum en lögreglan líti málið alvarlegum augum.

Umrætt atvik mun hafa átt sér stað síðastliðið sumar í fangelsi lögreglunnar við Hverfisgötu.

Samkvæmt heimildum fréttastofu Vísis var maðurinn á leið, í fylgd lögreglumannsins, fyrir dóm þegar lögreglumaðurinn mun hafa ráðist að manninum.

Lögreglumaðurinn hefur starfað hjá lögreglunni síðan atvikið átti sér stað síðasta sumar.

Gæti leitt til brottvikningar

Samkvæmt yfirlýsingu frá lögreglu kom til álita í janúar síðastliðnum hvort senda ætti lögreglumanninn í tímabundið leyfi vegna málsins. Það hafi þá verið lögfræðilegt mat að það væri ekki fært þar sem of langur tími væri liðinn frá því að atvikið átti sér stað.

Sú ákvörðun mun að sögn lögreglu verða endurskoðuð í ljósi útgáfu ákærunnar og er niðurstöðu að vænta á morgun. 

Verði maðurinn dæmdur sekur er það þá sagt geta leitt til varanlegrar brottvikningar úr lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert