Birtir myndir af ræningjanum

Apótekararæninginn á Bíldshöfða.
Apótekararæninginn á Bíldshöfða.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt myndir af manninum sem rændi apótek á Bíldshöfða skömmu fyrir klukkan 10 í gærmorgun.

Maðurinn, sem huldi andlit sitt með klút, var vopnaður hnífi. Ræninginn er talinn vera grannvaxinn, klæddur í rauða peysu, gallabuxur og með húfu. Hann var með svartan bakpoka meðferðis.

Apótekararæninginn á Bíldshöfða.
Apótekararæninginn á Bíldshöfða.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið, eða telja sig hafa séð til ferða mannsins eru beðnir um að senda einkaskilaboð á facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða senda tölvupóst í netfangið as@lrh.is. Ef einhverjir verða mannsins varir skal hringja strax í lögreglu í síma 112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert