91% barna hjá heimilistannlækni

Hjá tannlækninum.
Hjá tannlækninum. mbl.is/Golli

Um 91% barna sem eiga rétt á gjaldfrjálsum tannækningum eru nú skráð hjá heimilistannlækni. Undirbúningur er hafinn að samræmdri skráningu og innköllun tannheilsugagna barna og ungmenna hjá embætti landlæknis, að því er fram kemur á vef Ríkisendurskoðunar.

Þar segir að Ríkisendurskoðun telji að mikill árangur hafi náðst í skráningu barna og ungmenna hjá heimilistannlæknum.

„Árið 2014 voru 64% barna skráð hjá heimilistannlæknum en það hlutfall hefur nú hækkað í 91%. Einnig sýna upplýsingar frá velferðarráðuneyti að Sjúkratryggingar Íslands hafi greitt fyrir tannlækningar 46.167 barna árið 2016. Það eru 69% barna sem rétt eiga á niðurgreiddri tannlæknaþjónustu í samræmi við samning um tannréttingar barna frá 2013.

Ríkisendurskoðun telur einnig jákvætt að undirbúningur sé hafinn að samræmdri skráningu og innköllun tannheilsugagna barna og ungmenna, enda ætti slíkt að auðvelda rannsóknir á tannheilsu þeirra. Velferðarráðuneyti er engu að síður hvatt til þess að stuðla að því að slíkar rannsóknir verði gerðar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert