Formlegri leit að Artur hætt

Artur Jarmoszko
Artur Jarmoszko

Guðmund­ur Páll Jóns­son lög­reglu­full­trúi seg­ir að form­legri leit björgunarsveita að Art­ur Jarmosz­ko, sem hef­ur verið saknað frá mánaðamót­um, sé lokið. Ekki verður hafin leit að nýju nema nýjar vísbendingar berist lögreglu.

„Við höldum áfram að vinna úr okkar gögnum,“ segir Guðmundur. Engar vísbendingar hafa borist lögreglu um ferðir Arturs. Björgunarsveitirnar verða reiðubúnar að taka þátt í leit ef lögreglu þykir tilefni til. 

„Það er ekkert sem bendir til að refsivert athæfi hafi átt sér stað,“ segir Guðmundur. Hann segir torvelda leitina að átta dagar höfðu liðið áður en tilkynnt var um hvarf hans.

Lögreglunni hafa borist fjölmargar ábendingar frá almenningi um föt og skó sem hafa fundist á víðavangi. Flestar hafa borist lögreglu á Facebook. Enn sem komið er hafa engar þeirra nýst við rannsóknina en enn allt er skoðað og hvetur Guðmundur fólk að halda áfram að senda  ábendingar.

Síðast er vitað um ferðir hans rétt fyr­ir miðnætti 1. mars en þá sést hann á ör­ygg­is­mynda­vél­um í Lækj­ar­götu. 

Þeir sem geta gefið upp­lýs­ing­ar um ferðir Art­urs eru beðnir um að hafa sam­band við lög­regl­una í síma 444-1000 eða í gegn­um einka­skila­boð á Face­book-síðu lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu.

   

Leitað var meðfram strandlengjunni frá Gróttu að Álftanesi.
Leitað var meðfram strandlengjunni frá Gróttu að Álftanesi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert