Landsmönnum fjölgar um 1,8%

Landsmönnum fjölgaði um 5.820 í fyrra.
Landsmönnum fjölgaði um 5.820 í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsmenn voru 338.349 í byrjun janúar og hafði þá fjölgað um 5.820 frá sama tíma árið áður eða 1,8%. Konum og körlum fjölgaði nokkuð jafnt en karlar eru eigi að síður 3.717 fleiri en konur.

Mikil fólksfjölgun var á höfuðborgarsvæðinu en íbúum þar fjölgaði um 3.259 í fyrra eða 1,5%. Hlutfallslega varð þó mest fólksfjölgun á Suðurnesjum, 6,6%. Einnig fjölgaði íbúum á Suðurlandi (2,1%), Norðurlandi eystra (1,1%) og Vesturlandi (1%), en minna á Norðurlandi vestra (0,4%) og Austurlandi (0,4%). Fólksfækkun var á Vestfjörðum, en þaðan fluttust 13 manns (0,2%) í fyrra.

Íbúum á Suðurnesjum fjölgaði hlutfallslega mest í fyrra.
Íbúum á Suðurnesjum fjölgaði hlutfallslega mest í fyrra. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Alls 74 sveitarfélög voru á landinu á áramótum, en það er óbreyttur fjöldi frá því í fyrra. Sveitarfélögin eru misstór. Alls var íbúatala sex sveitarfélaga undir 100 en undir 1.000 í 40 sveitarfélögum. Einungis níu sveitarfélög höfðu yfir 5.000 íbúa.

Um áramót voru 60 þéttbýlisstaðir á landinu með 200 íbúa eða fleiri og fækkaði um einn milli ára. Auk þeirra voru 36 smærri staðir með 50–199 íbúa sem er fjölgun um einn frá fyrra ári. Í þéttbýli bjuggu 316.904 og fjölgaði um 5.054 milli ára. Í dreifbýli og smærri byggðakjörnum bjuggu 21.455 manns 1. janúar síðastliðinn.

Kjarnafjölskyldur voru 80.638 1. janúar en 79.870 ári áður. Til kjarnafjölskyldu teljast hjón og fólk í óvígðri sambúð, börn hjá þeim 17 ára og yngri, einhleypir karlar og konur sem búa með börnum 17 ára og yngri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert