Norðmenn eru hamingjusamastir allra í heimi samkvæmt nýrri hamingjuvísitölu Sameinuðu þjóðanna. Íslendingar skipa þriðja sæti listans en Danir eru í öðru sæti.
Norðmenn skipuðu fjórða sætið á listanum í fyrra en Svisslendingar eru í því sæti í ár. Meðal atriða sem horft er til eru frelsi, heilsa, tekjur og góð stjórnsýsla. Finnar eru í fimmta sæti listans í ár.
Hér eru frekari upplýsingar um hamingju þjóða