Á kolmunna vestur af Írlandi eftir snarpa loðnuvertíð

Á kolmunnaveiðum á Víkingi AK 100.
Á kolmunnaveiðum á Víkingi AK 100. Ljósmynd/Börkur Kjartansson

„Ég held að segja megi að loðnuvertíð sé lokið og hafi gengið vonum framar. Það kom vestanganga í restina og það var allt annað stand á þeirri loðnu en þeirri sem við höfðum verið að veiða dagana á undan,“ segir Ingimundur Ingimundarson, útgerðarstjóri uppsjávarskipa hjá HB Granda.

Ingimundur segir í Morgunblaðinu í dag, að ekki hafi komið til álita að fá meiri kvóta. „Hafrannsóknastofnun hefur ekki tök á að mæla þegar svona framorðið er á vertíðinni. Það var enginn tími til að bregðast við þessu, koma skipum út og fara að mæla. Þetta voru bara örfáir dagar sem mögulegt hefði verið að vera við veiðar til viðbótar.“

Hann segir að flotinn haldi nú til veiða á kolmunna vestan við Írland. „Þeir eru farnir á kolmunna nokkrir og fara sjálfsagt fleiri. Það var ágætisveiði um daginn en það hefur verið leiðindaveður þarna síðustu daga. Þetta er alþjóðlegt hafsvæði og þarna er yfirleitt ágæt veiði, en oft leiðinlegt veður á þessum árstíma.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert