Mislingar staðfestir á Íslandi

Embætti landlæknis hefur gefið út tilkynningu.
Embætti landlæknis hefur gefið út tilkynningu. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Mislingar hafa verið staðfestir í níu mánaða gömlu barni hér á landi. Barnið veiktist á þriðjudaginn fyrir viku og leitað var til bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins á sunnudag. Sýni voru tekin þar sem staðfestu mislingasmit.

Í tilkynningu á vef landlæknisembættisins segir að barnið hafi dvalist með fjölskyldu sinni í Taílandi og komið til landsins 2. mars, en veikst á þriðjudag með hita, útbrotum og öndunarfæraeinkennum.

Barnið mun vera óbólusett vegna ungs aldurs, en þurfti ekki að leggjast inn á Barnaspítalann vegna veikindanna. Landspítali og heilsugæsla höfuðborgasvæðisins munu þá hafa samband við foreldra óbólusettra barna sem hugsanlega gætu hafa smitast af viðkomandi barni og bjóða þeim nauðsynlega þjónustu og ráðleggingar.

Barnið mun ekki vera í dagvistun.

Allt að 95% barna bólusett

Enn fremur kemur fram í tilkynningunni að allt að 95% barna hér á landi séu bólusett gegn mislingum ásamt rauðum hundum og hettusótt, sem sé eitt hæsta hlutfall bólusettra barna í Evrópu.

„Því er ekki búist við að mislingar geti náð mikilli útbreiðslu og valdið stórum faröldrum hér á landi. En eins og alltaf má gera ráð fyrir að óbólusettir einstaklingar geti smitast af mislingum hér á landi. Mislingar geta reynst hættulegir einkum óbólusettum ungum börnum og ónæmisbældum einstaklingum,“ segir í tilkynningunni.

Síðasti mislingafaraldurinn á Íslandi átti sér stað árið 1977.

Samkvæmt upplýsingum frá landlæknisembættinu er veiran mjög smitandi og berst milli manna með úða frá öndunarfærum, til dæmis með hósta eða hnerra.

Læknir gefur ungri stúlku bóluefni. Mynd úr safni.
Læknir gefur ungri stúlku bóluefni. Mynd úr safni. AFP

Mest smitandi dagana fyrir útbrot

„Veiran getur lifað og valdið smiti í allt að tvær klukkustundir eftir að hún berst út í andrúmsloftið. Einkenni mislinga byrja að koma fram um 10–12 dögum eftir smit og geta verið mismikil eftir einstaklingum. Þau byrja oftast með flensulíkum einkennum, þ.e. hita, nefrennsli, sviða í augum, hósta, bólgnum eitlum og höfuðverk. Á þriðja eða fjórða degi veikindanna koma í flestum tilfellum fram útbrot sem ná yfir allan líkamann og standa í 3–4 daga eða þar til sjúkdómurinn fer að réna.

Mislingaveiran getur stundum valdið alvarlegum sjúkdómi og leitt til eyrna- eða lungnabólgu, kviðverkja, uppkasta, niðurgangs og heilabólgu. Mislingar eru mest smitandi dagana áður en útbrotin koma fram en eftir það dregur úr smitlíkum næstu fjóra dagana.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert