Bílvelta við Heiðarenda

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Bíll fór út af veginum norðanmegin í Heiðarenda á þjóðvegi 1 um níuleytið í morgun. Bíllinn valt tvær veltur er hann fór út af, en hálka og snjófjúk er á veginum.

Ökumaðurinn, sem er erlendur ferðamaður slapp ómeiddur frá veltunum, en bíllin er verulega skemmdur og líklega ónýtur að sögn lögreglunnar á Egilstöðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert