Gæslan fyllir á olíutankana í útlöndum

Eldsneyti á varðskipin er billegri utan landsteinanna.
Eldsneyti á varðskipin er billegri utan landsteinanna. mbl.is/Árni Sæberg

Íslensku varðskipin hafa ekki tekið olíu á Íslandi síðan 1. nóvember 2015. Fjórum sinnum var fyllt á olíutanka þeirra í Færeyjum í fyrra og einu sinni það sem af er þessu ári.

Þetta kemur m.a. fram í skriflegu svari Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Gunnari I. Guðmundssyni, varaþingmanni Pírata, um úthaldsdaga Landhelgisgæslunnar.

Landhelgisgæslan setti olíu á varðskipin í 32 skipti frá 1. janúar 2013 til 24. febrúar 2017. Hluti olíu sem keypt var í útlöndum var vegna erlendra verkefna. Oftast var olía keypt í Færeyjum eða í 14 skipti á fyrrgreindu tímabili, að því er fram kemur í umfjöllun um olíukaup Gæslunnar í útlöndum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert