Játaði að hafa skotið í Kópavogi

mbl.is/Þórður

Einn maður var handtekinn í dag grunaður um að hafa skotið af skotvopni í Kópavogi í gærkvöldi. Hann hefur játað að hafa verið að verki umrætt kvöld en bar því við að hann hafi verið búinn að fá vopnið úr viðgerð og ekki getað setið á sér að kanna hvort viðgerðin hafi tekist, því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Lagt var hald á önnur skotvopn í eigu mannsins og hann sviptur skotvopnaleyfi. Málið telst að fullu upplýst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert