Lögreglan óskar eftir vitnum

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Reykjanesbraut skammt austan við Kaplakrika, til móts við Setbergið í Hafnarfirði mánudaginn 20. mars, en tilkynning um slysið barst klukkan 10.20.

Þar rákust saman Toyota Yaris, vínrauður að lit, sem ekið var vestur Reykjanesbraut, og Peugeot Partner, hvítur að lit, sem ekið var austur Reykjanesbraut.

Yaris-bifreiðin fór yfir á rangan vegarhelming með þeim afleiðingum að árekstur varð og hafnaði hún utan vegar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Þeir sem urðu vitni að árekstrinum eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið 0140@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert