Bílvelta við Flúðir

Bíll valt út af veginum við Flúðir um þrjúleytið í nótt. Snjókoma var þegar slysið átti sér stað og segir lögreglan á Selfossi snjóþekju og hálku hafa verið á veginum.

Einn var fluttur á slysadeild í kjölfar veltunnar og er talið að hann hafi mögulega beinbrotnað.

Töluverðar skemmdir urðu á bílnum og þurfti kranabíl til að flytja hann af vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert