Byrjað að sópa götur og stíga

Götusópun í Reykjavík.
Götusópun í Reykjavík. Ljósmynd/Heiðar Kristjánsson

Byrjað var að sópa götur og stíga í Reykjavík í dag og er það samkvæmt áætlun um hreinsun. Fjölförnustu leiðirnar verða hreinsaðar fyrst en það eru allar stofnbrautir og tengigötur, sem og helstu göngu- og hjólastígar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Þessar meginleiðir liggja þvert um borgarlandið og njóta því forgangs, en að lokinni hreinsun þeirra verður farið hverfaskipt í húsagötur og þær sópaðar og þvegnar.

 „Við höfum verið að innleiða þetta breytta fyrirkomulag undanfarin ár, en förum nú í ár með það alla leið,“ segir Björn Ingvarsson sem fer fyrir þjónustumiðstöð borgarlandsins, í tilkynningunni. „Það má því mögulega búast við að einhverjum finnist við hafa gleymt húsagötu, en við förum fyrst allar meginleiðir, en komum síðan og sópum og þvoum húsagötur.“

Þegar farið verður í húsagötur verður það tilkynnt sérstaklega með dreifibréfi til íbúa og skilti sett í þær götur sem á að þrífa. Þegar þar að kemur verða bíleigendur beðnir um að færa bíla sína úr stæðum við götuna. Það gildir þó ekki um stæði inn á lóðum því þrif þeirra er í höndum húseigenda.

Á vef Reykjavíkurborgar – Reykjavik.is/hreinsun – má sjá verkáætlun vegna hreinsunar. Breytilegt er frá ári til árs í hvaða hverfi er farið fyrst. Þeir sem voru síðastir í fyrra eru fyrstir núna.

Björn biður fólk um að athuga að fyrsta sópun í húsagötum er grófsópun. Það þurfi oft að taka mikið upp af götum og stígum, en það fari í síðari yfirferð eða þvotti. Verkið gangi einnig margfalt betur ef íbúar færi bíla sína frá þegar þrifið er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert