Gáfu tvo sjúklingalyftara

Anna Birna Jensdóttir, formaður Thorvaldsensfélagsins, afhenti Steinunni Erlu Thorlacius, aðstoðardeildarstjóra …
Anna Birna Jensdóttir, formaður Thorvaldsensfélagsins, afhenti Steinunni Erlu Thorlacius, aðstoðardeildarstjóra röntgendeildar, gjöfina í gær að viðstöddum fleiri konum í félaginu og starfsfólki á deildinni.

Thorvaldsensfélag hefur fært röntgendeild Landspítala að gjöf tvo sjúklingalyftara. Annar þeirra verður á deildinni við Hringbraut, hinn í Fossvogi.

Í tilkynningu frá spítalanum segir að gjöfin sé kærkomin því svona lyftarar hafi ekki verið til á röntgendeildinni. Þeir munu auðvelda geislafræðingum vinnu sína með þunga sjúklinga og sjúklinga sem hafa ekki getu til að færa sig sjálfir yfir á rannsóknarbekkinn. Starfsmenn deildarinnar eru félaginu því þakklátir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert