Hefjast handa við mislæg gatnamót

Ólafur Ingi Tómasson, formaður skipulags- og byggingaráðs Hafnarfjarðarbæjar, tók fyrstu …
Ólafur Ingi Tómasson, formaður skipulags- og byggingaráðs Hafnarfjarðarbæjar, tók fyrstu skólfustunguna. Mynd/Hafnarfjörður

Fyrsta skóflustungan að framkvæmdum við ný mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar var tekin í dag. Fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar, Vegagerðarinnar og verktaka hittust á verkstað af þessu tilefni, en framkvæmdir hefjast strax enda á verkið að vinnast á skömmum tíma og vera lokið 1. nóvember. 

Í vikunni skrifuðu fulltrúar Loftorku, Suðurverks og Vegagerðarinnar undir verksamning um gerð gatnamótanna. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar og veitufyrirtækja. Verktakar hafa þegar komið upp vinnubúðum á svæðinu og eru þessa dagana að undirbúa framkvæmdina. Byrjað verður á því að færa lagnir af ýmsu tagi og leggja framhjáhlaup áður en hafist verður handa við byggingu brúarinnar sjálfrar.

„Það er mjög ánægjulegt að sjá framkvæmdir fara af stað og mikið gleðiefni hversu hratt framkvæmdin á að vinnast,“ er haft eftir Haraldi L. Haraldssyni, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, í tilkynningu.

Fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar, Vegagerðar og verktaka hittust á upphafsstað framkvæmda sem …
Fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar, Vegagerðar og verktaka hittust á upphafsstað framkvæmda sem fara af stað strax í dag. Mynd/Hafnarfjörður

Loftorka ehf. og Suðurverk ehf. áttu saman lægst boð upp á 918 milljónir króna en áætlaður verktakakostnaður var um 817 milljónir króna. Við bætist síðan ýmis kostnaður við undirbúning og hönnun verksins. Í verkinu felst gerð mislægra vegamóta á mótum Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar auk allrar vega- og stígagerðar sem nauðsynleg er til að ljúka gerð vegaframkvæmdanna endanlega. Til framkvæmdanna teljast einnig breytingar á Krýsuvíkurvegi, gerð tengivegar að Suðurbraut og tengivegar að Selhellu. Einnig er innifalin gerð göngu- og hjólastígs meðfram Suðurbrautartengingu og hraðatakmarkandi aðgerðir á Suðurbraut. Þá er gerð hljóðmana við Reykjanesbraut og í Hellnahverfi í Hafnarfirði hluti verksins. Einnig eru innifaldar breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja sem og nýlagnir og landmótun auk annarra þátta sem nauðsynlegir eru til að ljúka verkinu.

VSÓ ráðgjöf ehf. sinnir eftirliti en þeir áttu lægst boð í það verk upp á 19,4 milljónir króna. Áætlaður verktakakostnaður var 21 milljón króna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert