Meintur nauðgari áfram í haldi

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms um að maðurinn skuli áfram …
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms um að maðurinn skuli áfram sæta gæsluvarðhaldi. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að maður, sem grunaður er um að hafa nauðgað tveimur konum á hóteli á Selfossi, skuli sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 12. apríl.

Maðurinn, sem er spænskur, var hnepptur í varðhald í kjölfar handtöku sinnar á vettvangi mánudaginn 13. febrúar. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi allar götur síðan. 

Í úrskurði héraðsdóms, sem Hæstiréttur hefur nú staðfest, kemur fram að fallist sé á það með lögreglustjóra að maðurinn sé undir sterkum, rökstuddum grun um að hafa brotið gegn tveimur konum með stuttu millibili undir morgun þann 13. febrúar. Að mati dómsins má ætla að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna.

Kon­urnar sem hann er grunaður um að hafa nauðgað voru sofandi er hann er sagður hafa brotið gegn þeim. Þær voru í miklu upp­námi þegar þær til­kynntu um brotin. Sjúkra­liði þurfti að sprauta aðra þeirra niður.

Fyrri fréttir mbl.is:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert