Myndsímasamband fyrir ferðamenn

Kristín Hulda Bjarnadóttir í miðstöð Safetravel í Reykjavík gefur Ólöfu …
Kristín Hulda Bjarnadóttir í miðstöð Safetravel í Reykjavík gefur Ólöfu Ýrr Atladóttur góð ráð í dag. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Beint myndsímasamband er komið á milli upplýsingamiðstöðvar ferðamála í menningarhúsinu Hofi á Akureyri og SafeTravel verkefnisins sem Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur umsjón með í Reykjavík. Með þessu er ætlunin að auðvelda ferðafólki á Akureyri að nálgast margvíslegar og mikilvægar upplýsingar er lúta að öryggismálum ferðamanna, færð og ástandi vega, veðurhorfum og ýmiskonar almennar upplýsingar um ferðamannastaði.  Þessi tækni hefur ekki verið notuð áður hérlendis við upplýsingagjöf til ferðamanna.

Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri hringdi laust eftir hádegi fyrsta símtalið úr Hofi til Reykjavíkur. Fyrir svörum varð Kristín Hulda Bjarnadóttir og gaf ferðamálastjóra, sem þóttist þurfa að halda akandi til Egilsstaða, ýmsar hagnýtar upplýsingar um veður og færð, og hvar hún gæti fyllt tankinn á leiðinni! Gert er ráð fyrir að sambærilegur búnaður verði settur upp víðar um land í framtíðinni.

Mögulegt er að starfsmaður í Reykjavík geti sýnt spyrjandanum á Akureyri alls kyns upplýsingar á korti á tölvuskjánum. Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að starfsfólk SafeTravel búi yfir yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu af forvörnum og upplýsingagjöf til ferðamanna

Ferðamálastjóri sagði við þetta tækifæri að með nýrri þjónustu væri verið að auðvelda ferðafólki á Akureyri að nálgast margvíslegar og mikilvægar upplýsingar með persónulegum hætti. „Það er mikilvægt að nýta alla valkosti til þess að hvetja ferðamenn til að afla sér upplýsinga sem lúta að þeirra eigin öryggi og með þessu geta þeir fengið upplýsingar beint í æð, um færð og ástand vega á landsvísu, veðurhorfur, sem og almennar upplýsingar um ferðamannastaði,“ sagði Ólöf Ýrr.

Smári Sigurðsson, formaður Landsbjargar, segir tæknina auka upplýsingagjöf verkefnisins töluvert. „Nú getur ferðafólk hér á Akureyri komist í samband við sérfræðinga okkar hjá SafeTravel á einfaldan hátt og fengið, svo dæmi sé tekið, nákvæmar upplýsingar um ástand fjallvega, vatnsmagn í óbrúuðum ám og fleira sem björgunarsveitafólk í hálendisvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar miðlar stöðugt til upplýsingamiðstöðvar SafeTravel.“

Um 800.000 erlendir ferðamenn fengu upplýsingar og aðstoð frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg á síðasta ári gegnum SafeTravel. Um 500.000 manns heimsóttu vef SafeTravel, um 260.000 manns kynntu sér upplýsingar á bæklingum sem dreift var samkvæmt ýmsum leiðum. Verkefnið er með kynningar í flugvélum, í bílaleigubílum, 85 upplýsingaskjáum víða um land. Starfsfólk SafeTravel stendur vaktina allt árið um kring í upplýsingamiðstöð ferðamála í Reykjavík. Um 6 til 8.000 ferðamenn nýta sér þjónustu Hálendisvaktar Slysavarnafélagsins Landsbjargar á hverju sumri.

Ólöf Ýrr Atladóttir hringir fyrsta myndsímtalið úr Hofi til miðstöðvar …
Ólöf Ýrr Atladóttir hringir fyrsta myndsímtalið úr Hofi til miðstöðvar Safetravel í Reykjavík. Gísli Vigfús Sigurðsson frá Landsbjörgu er Ólöfu til fulltingis. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert