Bíll út af veginum við Víðigerði

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Bíll fór út af veginum við Víðigerði um hálfellefuleytið í gærkvöldi. Bíllinn sem var fyrir aftan stoppaði þegar ökumaðurinn varð óhappsins var, en ekki vildi betur til en svo að bíllinn sem kom á eftir honum keyrði þá aftan á hann.

Engin meiðsl urðu á fólki að sögn lögreglunnar á Blönduósi, en einhverjar skemmdir eru á bílunum. Mjög hvasst var á slysstað að sögn lögreglumanna sem fóru á vettvang og flughálka og skafrenningur á veginum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert