Bílvelta varð á Garðvegi, á milli Keflavíkur og Garðs, rétt fyrir hádegi. Tveir menn um tvítugt voru í bílnum.
Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum voru þeir fluttir á slysadeild en sluppu að mestu við meiðsli. Skipti þar sköpum að þeim voru báðir í bílbeltum.
Lögreglan telur að ökumaðurinn hafi missti bílinn út í kant og ætlað að rétta hann við með þeim afleiðingum að hann valt.