Öllu flugi til og frá Ísafirði hefur verið aflýst í dag annan daginn í röð. Annað innanlandsflug er á áætlun samkvæmt vefsíðu Flugfélags Íslands. Í gær lá allt innanlandsflug niðri framan af degi en hófst svo að nýju um miðjan daginn til Egilsstaða og Akureyrar en ekki til Ísafjarðar.