Engar nýjar vísbendingar borist

Artur Jarmoszko.
Artur Jarmoszko.

Lögreglunni hafa ekki borist neinar nýjar vísbendingar í tengslum við hvarf Arthurs Jarmoszko eftir að formlegri leit af honum var hætt á mánudaginn. Arthurs hef­ur verið saknað síðan um mánaðamótin en leit verður ekki hafin að nýju nema að lögreglu berist nýjar vísbendingar í málinu.

„Því miður, við höfum bara ekkert,“ segir Guðmund­ur Páll Jóns­son lög­reglu­full­trúi. „Við skoðum allar vísbendingar sem koma, ef þær koma,“ bætir hann við. Því sé það eina í stöðunni sem stendur að bíða og sjá hvað setur.

Síðast er vitað um ferðir Arturs rétt fyr­ir miðnætti 1. mars en þá sést hann á ör­ygg­is­mynda­vél­um í Lækj­ar­götu. Þeir sem geta gefið upp­lýs­ing­ar um ferðir Art­urs eru beðnir um að hafa sam­band við lög­regl­una í síma 444-1000 eða í gegn­um einka­skila­boð á Face­book-síðu lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert