Góð innsýn í peningasögu landsmanna

Friðrik Sophusson, stjórnarformaður Íslandsbanka, Sigríður Olgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Rekstrar- og upplýsingatæknisviðs …
Friðrik Sophusson, stjórnarformaður Íslandsbanka, Sigríður Olgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Rekstrar- og upplýsingatæknisviðs Íslandsbanka, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, Margrét Hallgrímsdóttir, Þjóðminjavörður og Sigurður Helgi Pálmason, safnvörður í Seðlabanka Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Íslandsbanki afhenti í dag Seðlabanka Íslands og Þjóðminjasafninu mynt- og seðlasafn bankans. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, afhenti Má Guðmundssyni seðlabankastjóra safnið við athöfn í Smáralind í dag.

Safnið samanstendur af 1.300 munum allt frá árinu 1675 til ársins 2000 og hafa munirnir fylgt Íslandsbanka frá stofnun bankans. Seðlahluta safnsins má nefna Ríkisdal frá árinu 1815 ásamt prufuprentun á bráðabirgðaseðli bankans sem gefinn var út árið 1919 að því er segir í tilkynningu frá Íslandsbanka. Hluti safnsins verður til sýnis í Smáralind næstu þrjár vikur í tilefni af Hönnunarmars. 

Hluti safnsins er til sýnis í Smáralind.
Hluti safnsins er til sýnis í Smáralind. mbl.is/Kristinn Magnússon


Elsti vörupeningurinn í mynthluta safnsins er frá árinu 1846 sem var fyrsti vörupeningurinn. Einnig má nefna brauðpening frá Bökunarfélagi Ísfirðinga sem er eina eintakið sem vitað er að sé til af þeim pening.

„Það er mikil ánægja fyrir okkur að afhenda Seðlabankanum og Þjóðminjasafninu mynt- og seðlasafn bankans til að varðveita áfram þessa sögulegu heimild,“ segir Birna við tilefnið. „Það er mjög viðeigandi að gera það núna í tengslum við Hönnunarmars þar sem þessar myntir eru margar hverjar mikið listaverk og við vitum safninu verða gerð góð skil.“

„Sagan í silfrinu.“
„Sagan í silfrinu.“ mbl.is/Kristinn Magnússon


Þá er haft eftir Má Guðmundssyni að mjög ánægjulegt sé að Íslandsbanki skuli afhenda Myntsafni Seðlabanka og Þjóðminjasafni gripina, en þeir gefi góða innsýn í peningasögu landsmanna.

„Þá sérstaklega hvernig saga seðla og myntar og annarra greiðslumiðla þróaðist á upphafsárum bankastarfsemi á Íslandi.  Þar má bæði benda á venjulega peninga og svo þá sem í dag teljast óvenjulegir eins og svokallaðir vörupeningar.  Auk þess gefur safnið góða innsýn í hönnunarferli og framleiðslu fyrstu seðlanna sem prentaðir voru hérlendis,“ segir Már.

Már kynnir sér sögu safnsins sem spannar yfir 300 ár.
Már kynnir sér sögu safnsins sem spannar yfir 300 ár. mbl.is/Kristinn Magnússon
Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert