Kvennó og MH mætast í úrslitum Gettu betur

Frá viðureign MH og ME í kvöld.
Frá viðureign MH og ME í kvöld. Skjáskot af vef RÚV

Menntaskólinn við Hamrahlíð mætir Kvennaskólanum í Reykjavík í úrslitum Gettu betur sem fram fara á föstudaginn. Seinni viðureign undanúrslita Gettu betur fór fram í kvöld þar sem MH sigraði Menntaskólann á Egilsstöðum með 40 stigum gegn 27.

Í fyrri viðureigninni áttust við lið Menntaskólans á Akureyri og Kvennaskólans í Reykjavík sem sigraði með 39 stigum gegn 28 stigum MA.

Í liði Menntaskólans við Hamrahlíð eru þau Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Guðmundur Ingi Bjarnason og Gunnar Ólafsson. Í liði ME í kvöld voru þau Alexander Ingi Jónsson, Gísli Björn Helgason og Ása Þorsteinsdóttir.

Frá viðureign MH og ME í kvöld.
Frá viðureign MH og ME í kvöld. Skjáskot af vef RÚV
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert