Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var þrívegis kallað út í nótt til að slökkva eld. Um hálffjögurleyti kviknaði eldur í bíl í Mosfellsbæ og einnig í ruslatunnu á Hverfisgötu.
Um fimmleytið kviknaði svo eldur í ruslatunnugeymslu í Ljósheimum.
Sjúkraflutningar voru 45 talsins, sem þykir í meira lagi á laugardagsnótt.