Fjögurra bíla árekstur í Breiðholti

mbl.is

Fjögurra bíla árekstur varð á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Stekkjarbakka um fjögurleytið í dag. Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru einhverjir fluttir á slysadeild.

Meiðsli fólksins eru talin minni háttar.

Slökkviliðið er á vettvangi vegna slyssins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert