Banna slátrun nautgripa eftir kjötmjölsát

Ummerki voru um að nautgripir hefðu verið við sekkina og …
Ummerki voru um að nautgripir hefðu verið við sekkina og því telur MAST sýnt að nautgripirnir hafi sleikt og étið kjötmjöl úr sekkjunum. Nautgripirnir á myndinni tengjast fréttinni ekki beint. mbl.is/Styrmir Kári

Bann hefur verið lagt við markaðssetningu afurða og slátrun til manneldis og flutning gripa frá bænum Eystri-Grund við Stokkseyri eftir að nautgripir á bænum höfðu aðgang að óvörðum og götuðum sekkjum af kjötmjöli sem nota átti sem áburð í flög. Óheimilt er að nota kjötmjöl sem fóður fyrir dýr í matvælaframleiðslu.

Í fréttatilkynningu frá MAST segir að notkun á kjötmjöli sem fóður eða til fóðurgerðar fyrir dýr sem alin eru til manneldis sé bönnuð með umfangsmikilli löggjöf, til að hindra að heilahrörnunarsjúkdómar berist í menn og dýr. „Þrátt fyrir að kjötmjölið hafi verið ætlað til notkunar sem áburður í flög, þá var ljóst að nautgripir höfðu óheft aðgengi að sekkjunum um nokkra mánaða skeið,“ segir í tilkynningunni.

Göt voru á sekkjunum eftir tæki sem notað var til að koma sekkjunum á planið og þá höfðu fuglar gatað sekkina enn frekar. Þó svo að ekki hafi verið um ætlaða fóðurgjöf að ræða heldur andvaraleysi, þá voru ummerki á staðnum um að nautgripir hafi verið við sekkina og því telur MAST sýnt að nautgripirnir hafi sleikt og étið kjötmjöl úr sekkjunum.

Matvælastofnun er heimilt að stöðva starfsemi að hluta eða í heild, sé rökstuddur grunur um að matvæli séu heilsuspillandi eða óhæf til neyslu.

Með ákvörðuninni er óheimilt að slátra gripunum til manneldis, eða flytja þá af búinu. Bannið nær hins vegar ekki til þeirra gripa sem haldnir voru inni í gripahúsi og höfðu ekki aðgang að kjötmjölinu.

Matvælastofnun hefur lagt fyrir landbúnaðarráðherra tillögur að fyrirskipun um förgun og eyðingu á þeim gripum sem höfðu óheft aðgengi að kjötmjölinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert