Austan kaldi og smáskúrir verða í dag á landinu suðaustanverðu, en annars hægari vindur og léttskýjað.
Á morgun má hins vegar búast við ákveðinni austanátt 5-15 m/s, hvassast syðst. Skýjað verður með köflum og skúrir við suðurströndina. Hiti verður á bilinu 1 til 8 stig yfir daginn, en búast má við næturfrosti víða um land.
Útlit er fyrir svipað veður á miðvikudag og fimmtudag að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar.