Mun hætta botnfiskvinnslu á Akranesi

Akranes. 93 manns starfa við botnfiskvinnsluna í bæjarfélaginu.
Akranes. 93 manns starfa við botnfiskvinnsluna í bæjarfélaginu. mbl.is/Árni Sæberg

HB Grandi áformar að láta af botnfiskvinnslu á Akranesi og stefnir að því að sameina botnfiskvinnslu félagsins á Akranesi vinnslunni í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Segir þar að útgerðin hafi haft samráð við trúnaðarmenn stéttarfélaga starfsmanna vegna þessa og þess sem það kann að þýða fyrir starfsfólk.

Á Akranesi starfa nú um 270 starfsmenn innan samstæðu HB Granda, þar af starfa 93 við botnfiskvinnsluna.

HB Grandi rekur, auk botnfiskvinnslunnar, skipaverkstæði, fiskimjölsverksmiðju, loðnuvinnslu og tvö dótturfyrirtæki, Norðanfisk og Vigni G. Jónsson, á Akranesi.

Segir í tilkynningunni að stefnt sé að frekari uppbyggingu og eflingu þess rekstrar á Akranesi.

Í dag sé hvorki hafnaraðstaða né aðstaða til vinnslu alls botnfiskafla ísfisktogara HB Granda á Akranesi en forsvarsmenn félagsins og Akranesbæjar eigi í viðræðum um mögulegar breytingar á því.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert