WOW hefur flug til Chicago

WOW mun bæta Chicago við áfangastaði sína í sumar.
WOW mun bæta Chicago við áfangastaði sína í sumar. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar

Flugfélagið WOW hefur ákveðið að hefja áætlunarflug til Chicago. Icelandair hóf áætlunarflug til borgarinnar í fyrra en þá voru 28 ár frá því að flugfélagið bauð upp á flug til þessarar þriðju stærstu borgar Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í frétt Túrista.is.

Með þessari viðbót eiga íslensku félögin tvö í samkeppni í flugi héðan til fjögurra bandarískra borga.

Í fréttatilkynningu frá WOW air kemur fram að félagið hefji áætlunarflug til borgarinnar 13. júlí. Flogið verður fjórum sinnum í viku, á mánudögum, miðvikudögum, fimmtudögum og laugardögum til 22. október. 

Chicago er tíundi áfangastaður WOW air í Norður-Ameríku. Flogið verður í nýjum Airbus A321 vélum til O‘Hare flugvallar, sem er í 27 km fjarlægð frá miðbænum.

„Með þessum nýja áfangastað styrkir WOW air enn frekar leiðakerfi sitt með tengiflugi milli Norður-Ameríku og Evrópu með viðkomu á Íslandi. Markmiðið er að anna mikilli eftirspurn eftir flugi til og frá Norður-Ameríku,“ segir í tilkynningunni en WOW air flýgur nú þegar til Washington D.C., Boston, New York, Los Angeles, San Francisco, Toronto og Montréal og mun hefja flug til Miami þann  5. apríl og til Pittsburgh 16. júní næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert