Erlendir ferðamenn teknir í kennslustund

Það þarf að passa að stilla ljósin rétt.
Það þarf að passa að stilla ljósin rétt. mbl.is/Ómar Óskarsson

Lögreglan á Suðurnesjum hélt um helgina uppi eftirliti á Reykjanesbraut, skammt frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar, til að athuga ástand ökumanna og ekki síður til að árétta notkun ljósabúnaðar.

Nokkur fjöldi bifreiða sem voru á leið frá flugstöðinni var stöðvaður. Voru þar meðal annars á ferðinni allmargir erlendir ferðamenn sem greinilega kunnu ekki að stilla ljósin á bifreiðunum sem þeir óku svo fullnægjandi væri. Þeir voru teknir í örstutta kennslustund til að auka öryggi þeirra sjálfra og annarra í umferðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert