Fjarlægðu númer af 180 ökutækjum

Um helgina fjarlægði lögreglan skráningarnúmer af 180 ökutækjum víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu, en þau voru ýmist ótryggð eða óskoðuð og jafnvel hvort tveggja.

Lögreglan segir mjög mikið vera um ótryggð og óskoðuð ökutæki í umdæminu og hvetur hún eigendur og umráðamenn ökutækjanna til að gera þar bragarbót á.

Undanfarið hafa skráningarnúmer verið fjarlægð af fjölmörgum ökutækjum sem uppfylltu ekki ákvæði um skoðun eða voru ótryggð. Lögreglan heldur eftirlitinu áfram og hvetur ökumenn til að passa upp á þetta svo ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert