Íslendingar taki með sér vegabréf til Ítalíu

Ítalir hafa tilkynnt íslenskum stjórnvöldum að tímabundnu landamæraeftirliti verður komið á frá 10. maí til og með 30. maí 2017 á öllum ítölskum landamærastöðvum.

Utanríkisráðuneytið minnir alla þá, sem leið eiga til Ítalíu, á að hafa með sér vegabréf, sem eru einu gildu íslensku ferðaskilríkin.

„Þessi áminning á raunar við öll ferðalög úr landi því ekki er hægt að tryggja að ferðalangar komist á leiðarenda eða á milli landa nema með gild vegabréf. Ferðalöngum er því eindregið ráðið frá því að treysta á önnur skilríki,“ segir í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Jafnframt eru þeir sem hyggja á ferðalög minntir á að kanna gildistíma vegabréfa sinna og bera sama við kröfur þess lands sem ferðast skal til en vegabréf skulu gilda frá 3 til 6 mánuðum lengur en áætluð ferðalok. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert