Troðið af fólki í innritunarsalnum

Margt er af fólki í innritunarsal flugstöðvarinnar. Fólk er illa …
Margt er af fólki í innritunarsal flugstöðvarinnar. Fólk er illa upplýst um framhaldið. mbl.is/Svali

Öllum flugfarþegum sem áttu flug frá Leifsstöð í dag var vísað út um vopnaleitina í innritunarsal flugstöðvarinnar þar sem þeir bíða nú átekta. Þeir eru illa upplýstir um hversu lengi þeir þurfa að bíða áður en hleypt verður inn í flugstöðina að nýju en fram kom í fyrri frétt mbl.is af málinu að fyrir mannleg mistök hefðu farþegar í flugvél frá Grænlandi ekki farið í gegnum öryggisleit og blandast öðrum farþegum.

Samkvæmt verklagi í flugverndarreglum þarf að rýma flugstöðina þannig að allir farþegar fari í gegnum öryggisleit að nýju. Engin hætta er talin vera á ferð skv. upplýsingum frá ISAVIA.

Öllum vísað í innritunarsalinn þar sem troðið er nú af fólki

Útvarpsmaðurinn Sigvaldi Þórður Kaldalóns, best þekktur sem Svali á K100, var kominn út í rútu sem ferjaði flugfarþega að flugvélinni á leið til Kanada þegar henni var snúið við vegna öryggisrofsins. „Öryggislúðrarnir fóru í gang og í kjölfarið var tilkynnt um að öryggisbrestur hefði orðið,“ segir Svali. „Starfsmaður sem hefur unnið þarna í níu ár sagðist aldrei hafa lent í þessu,“ bætir Svali við.

Hann segir að öryggisverðir hefðu verið um alla flugstöð þegar hann steig út úr rútunni, en öryggisvörður fylgdi Svala og öðrum farþegum á leið til Kanada úr flugstöðinni. Þegar mbl.is náði tali af Svala var hann kominn í innritunarsalinn, við rúllustigann sem ferjar farþega upp að vopnaleitinni. Svali áætlaði að farþegarnir skiptu þúsundum, troðið væri af fólki í allar áttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert