Þæfingur á heiðum

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Vesturlandi en hálkublettir eru þá á Holtavörðuheiði.  Á Vestfjörðum er eitthvað um hálku eða snjóþekja á fjallvegum en þæfingur er á Steingrímsfjarðarheiði og Trostansfirði. 

Greiðfært er á Norðvesturlandi en á Norðausturlandi eru hálkublettir á Víkurskarði, Fljótsheiði og Mývatnsheiði.

Á Austurlandi er snjóþekja eða hálkublettir á fjallvegum en greiðfært á láglendi.

Greiðfært er með Suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert