Mótmæltu mengunarmálum United Silicon

Frá mótmælunum í kvöld.
Frá mótmælunum í kvöld. Ljósmynd/Víkurfréttir - Hilmar Bragi

Talsverður fjöldi mótmælenda safnaðist saman fyrir utan ráðhús Reykjanesbæjar í kvöld til þess að mótmæla ástandi mengunarmála hjá United Silicon í Helguvík. Mikil umræða hefur átt sér stað að undanförnu vegna mengunarmála fyrirtækisins.

Líkt og fram kom í Morgunblaðinu í dag liggur fyrir að fyrri mælingar á mengun í nágrenni verksmiðjunnar séu í engu samhengi við raunverulega losun frá henni. Beðið er eftir niðurstöðum frá rannsóknarstofu í Svíþjóð sem vænta má á næstunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert