Árbæjarskóli sigraði í spurningakeppni grunnskólanna í gær, en keppnin nefnist Veistu svarið. Fóru úrslit keppninnar fram í Laugalækjarskóla í gær og eftir spennandi viðureignir stóð spurningalið Árbæjarskóla uppi sem sigurvegari og náði þar með að verja titilinn þriðja árið í röð.
Úrslitaviðureignin var við Laugalækjarskóla og fóru leikar 22-11 Árbæjarskóla í vil. Setbergsskóli lenti í þriðja sæti eftir sigur á Valhúsaskóla. Sigurlið Árbæjarskóla skipa Gabríel Máni Ómarsson, Sindri Smárason, Jenný María Jóhannsdóttir og Bjarki Kjartansson en þjálfari liðsins er Árni Björnsson. Undanfarin ár hefur keppnin verið í höndum Hannesar Daða Haraldssonar sem hefur samið spurningar og verið spyrill keppninnar.