800 nýjar íbúðir í Skerjafirði

Land ríkisins í Skerjafirði sem losnaði við lokun neyðarbrautarinnar er …
Land ríkisins í Skerjafirði sem losnaði við lokun neyðarbrautarinnar er um 11 hektarar að stærð. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

800 íbúðir er fyrirhugaðar í Skerjafirði, samkvæmt drögum að húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar sem voru kynnt á þriðjudaginn.

Ekkert kemur fram um meðalstærð íbúðanna í áætluninni en 25% þeirra verða í eigu húsnæðisfélaga. Íbúðirnar eru á svokölluðu þróunarsvæði í borginni. 

Hugmynd að því hvernig skipulag á byggingarsvæðinu í Skerjafirði gæti …
Hugmynd að því hvernig skipulag á byggingarsvæðinu í Skerjafirði gæti litið út. Mynd/Christopher Lund

Reykjavíkurborg gerði samning árið 2013 um að kaupa landið, sem er 11 hektarar, af ríkissjóði á 440 milljónir króna. Þar var kveðið á um að ríkið fái hlut af tekjum vegna sölu byggingaréttar á svæðinu.

Landið losnaði við lokun neyðarbrautarinnar svonefndu á Reykjavíkurflugvelli og hefur sala þess verið afar umdeild.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert