Stöðvuðu þrjá jeppa á hálendinu

Hálendi Íslands var vaktað af lögreglu í dag.
Hálendi Íslands var vaktað af lögreglu í dag. mbl.is/Rax

Þrír jeppar voru stöðvaðir af lögreglunni á Suðurlandi í dag, sem flaug með þyrlu Landhelgisgæslunnar í hálendiseftirlit í og við Landmannalaugar, til að kanna ástand ökumanna.

Rætt var við ökumenn jeppanna en engar athugasemdir voru gerðar af hálfu lögreglu, að því er fram kemur í tilkynningu hennar.

Ferðalangar sem aka um hálendið mega þá eiga von á því að vera stöðvaðir og ástand og ökuréttindi þeirra könnuð, segir í tilkynningunni.

„Þetta samstarf lögreglunnar á Suðurlandi og Landhelgisgæslunnar hefur verið um ára bil og hefur verið góð viðbót við eftirlit lögreglunnar um hálendið.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert