Lundinn sestur upp

Lundanum, sem stundum er kallaður prófasturinn og er sagður ljúfastur …
Lundanum, sem stundum er kallaður prófasturinn og er sagður ljúfastur fugla, fylgir alltaf rómantík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fyrstu lundarnir settust upp í Vestmannaeyjum í dag. Talsvert af fugli sást í og við Kaplagjótu við Dalfjall nú í kvöld. Í Vestmannaeyjum er lundinn ekki síður vorboðinn ljúfi en lóan. Er lundinn aðeins fyrr á ferð nú en síðustu ár, segir í frétt á vefnum Eyjar.net.

Til að mynda settist hann upp þann 19. apríl í fyrra og 18. apríl árið 2015. Það voru glöggir fuglaáhugamenn sem sáu lundann í kvöld á göngu sinni um Dalfjall. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert