Húsnæðisverð hækkað um 21%

Húsnæðisverð hefur hækkað mikið undanfarið.
Húsnæðisverð hefur hækkað mikið undanfarið. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 552,1 stig í mars 2017 og hækkaði um 2,7% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 7,1%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 12,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 20,9%.

Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár Íslands.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

„Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði,“ segir á vefnum.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert