Öxnadalsheiði líka ófær fram á sumar

Öxnadalsheiði og Holtavörðuheiði.
Öxnadalsheiði og Holtavörðuheiði. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Öxnadalsheiði og Holtavörðuheiði eru lokaðar. Lögreglan á Blönduósi er að aðstoða fólk sem hafði snúið við niður af Öxnadalsheiði í kvöld vegna ófærðar, meðal annars við að finna sér gistingu á svæðinu í nótt.

Björgunarsveitir á Norðurlandi fóru í að minnsta kosti tvö útköll í kvöld og aðstoðuðu fólk sem sat fast í bílum sínum á heiðunum.  

Ökumaður flutningabíls sem valt á Holtavörðuheiði slasaðist ekki alvarlega, að sögn lögreglunnar á Blönduósi. Hann var fluttur með sjúkrabíl á Hvammstanga til aðhlynningar. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert