Tekin á 137 km hraða

mbl.is/Þórður

Kona á fimmtugsaldri var tekin á 137 kílómetra hraða á klukkustund á bíl sínum í dag í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi.

Að sögn lögreglunnar þurfti konan, sem er íslensk, að greiða háa sekt fyrir hraðaksturinn, eða 90 þúsund krónur.

Þegar mbl.is hafði samband við lögregluna fyrr í kvöld höfðu sjö verið stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í nágrenni Blönduóss en umferðin þar hefur verið mikil í dag.

Taldi lögreglan það spila inn í að frídagur er á morgun og að Andrésar Andar-leikarnir fara núna fram í Hlíðarfjalli við Akureyri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert