Ólöf Skaftadóttir ráðinn aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins

Ólöf Skaftadóttir hefur verið ráðin aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, að því er fram kemur hjá Kjarnanum. Mun hún starfa við hlið Andra Ólafssonar við fréttastjórn. Ólöf hefur starfað um nokkurt skeið hjá 365 miðlum, sem blaðamaður, umsjónarmaður helgarblaðs Fréttablaðsins og við ritstjórn 19:10, samkvæmt Kjarnanum.

Í frétt Kjarnans segir að greint hafi verið frá ráðningunni í tölvupósti til starfsmanna í dag. Þar segir einnig að Ólöf sé dóttir Kristínar Þorsteinsdóttur, aðalritstjóra fréttastofu 365 og útgefanda fréttablaðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert