Ölvaður hringdi 154 sinnum í 112

Ölvaður einstaklingur hringdi að tilefnislausu vel á annað hundrað símtöl til neyðarlínunnar, 112, á einum sólarhring í vikunni. Lögreglunni á Suðurnesjum var gert viðvart um háttsemi mannsins þegar hann hafði hringt 100 símtöl og fóru lögreglumenn á heimili hans og ræddu við hann um alvarleika þess athæfis að hefta línur neyðarlínunnar.

Ekki dugði það til því eftir það hringdi hann samtals 54 símtöl í 112, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. 

Þegar lögreglumenn fóru heim til hans í fjórða sinn brást hann illa við með æsingi og ógnandi framkomu. Hann var því handtekinn og vistaður í fangaklefa meðan áfengisvíman var að renna af honum, segir ennfremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert