Skýra þarf lög um fiskveiðar

Byggð hefur verið brothætt á Raufarhöfn.
Byggð hefur verið brothætt á Raufarhöfn. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður atvinnuveganefndar Alþingis, segir mikilvægt að stjórnvöld marki skýra stefnu til byggðarfestusjónarmiða í lögum um stjórn fiskveiða.

„Bæði andi laganna og ákvæði gera ráð fyrir ákveðinni byggðarfestu aflaheimilda. Með dómi Hæstaréttar, sem féll um mitt ár 2015, var komist að þeirri niðurstöðu að ákvæði um forkaupsrétt sveitarfélaga héldi ekki þegar keypt væru hlutabréf í fyrirtæki eða fyrirtæki keypt að öllu leyti upp,“ segir Páll.

Í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að hann telur stjórnvöld þurfa að svara því, fyrst ákvæði laganna haldi ekki, hvort og þá hvernig eigi að tryggja byggðarfestu sem gert er ráð fyrir í lögum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert